Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 310 — 305. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um hjúkrunarfræðinga.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.
1. Hve mörg stöðugildi hjúkrunarfræðinga voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
2. Hversu margir hjúkrunarfræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
3. Hve mörg stöðugildi hjúkrunarfræðinga voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
4. Hversu margir hjúkrunarfræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
5. Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum?
6. Hefur ráðuneytið skilgreint störf hjúkrunarfræðinga í heilbrigðiskerfinu og hvort störf þeirra eða hluti starfa þeirra geti verið unninn af öðrum fagstéttum í heilbrigðiskerfinu?
7. Hvert er lágmarksviðmið um mönnun hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum?
8. Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt hjúkrunarfræðinga?
9. Hversu mörg leggja stund á nám í hjúkrunarfræði til BS-gráðu (240 ECTS)?
Skriflegt svar óskast.