Ferill 307. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 312 — 307. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um sjúkraliða.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.
1. Hve mörg stöðugildi sjúkraliða voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
2. Hversu margir sjúkraliðar mönnuðu þessi stöðugildi?
3. Hve mörg stöðugildi sjúkraliða voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
4. Hversu margir sjúkraliðar mönnuðu þessi stöðugildi?
5. Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun sjúkraliða á heilbrigðisstofnunum?
6. Hvert er lágmarksviðmið um mönnun sjúkraliða á heilbrigðisstofnunum?
7. Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt sjúkraliða hér á landi?
8. Hversu mörg leggja stund á nám á sjúkraliðabrautum í framhaldsskólum (206 fein.)?
9. Hversu mörg stunda nám á sjúkraliðabrú (145 fein.)?
Skriflegt svar óskast.