Ferill 319. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 329  —  319. mál.




Beiðni um skýrslu


frá mennta- og barnamálaráðherra um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps í leikskólum og grunnskólum.

Frá Halldóru Mogensen, Andrési Inga Jónssyni, Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Birni Leví Gunnarssyni, Evu Sjöfn Helgadóttur, Eyjólfi Ármannssyni, Gísla Rafni Ólafssyni, Guðmundi Inga Kristinssyni, Jakobi Frímanni Magnússyni, Líneik Önnu Sævarsdóttur, Loga Einarssyni, Oddnýju G. Harðardóttur, Tómasi A. Tómassyni og Wilhelm Wessmann.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að mennta- og barnamálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps í leikskólum og grunnskólum og um áhrif þeirra á starfsemi og heilsu. Í skýrslunni komi eftirfarandi fram:
     1.      Hver hefur kostnaður verið á hverju ári undanfarin 10 ár vegna viðgerða, niðurrifs og endurbyggingar húsnæðis leikskóla og grunnskóla af völdum rakavandamála, þ.e. leka, rakaskemmda eða myglu, og hvað er gert ráð fyrir miklum kostnaði vegna þessa á næstu árum?
     2.      Hversu margir starfsmenn leikskóla og grunnskóla hafa undanfarin 10 ár starfað í húsnæði sem er skemmt vegna raka eða myglu og hversu margir nemendur hafa orðið að víkja úr skólastofum sínum vegna rakaskemmda, slæmra loftgæða og myglu á sama tíma? Hvað er vitað um áhrif þessa á heilsu starfsmanna og nemenda í leikskólum og grunnskólum til lengri og skemmri tíma, um útgjöld heilbrigðiskerfisins og um útgjöld vegna örorku og vinnutaps af þessum sökum?
     3.      Hvaða útgjöld hafa orðið undanfarin 10 ár vegna röskunar á starfsemi leikskóla og grunnskóla í kjölfar lokunar og rýmingar á húsnæði vegna rakaskemmda og myglusvepps?

Greinargerð.

    Þessi beiðni um skýrslu var áður flutt á 150. löggjafarþingi og 151. löggjafarþingi (670. mál).
    Lítið er til af heildstæðum upplýsingum um rakaskemmdir og myglu í fasteignum og um áhrif þeirra á þá sem þar dvelja. Með þessari skýrslubeiðni er þess farið á leit að tekinn verði saman kostnaður leikskóla og grunnskóla vegna tjóns af völdum rakaskemmda og myglusvepps á húsnæði og að safnað verði upplýsingum um áhrif þeirra á heilsu starfsfólks. Flutningsmenn vona að svörin nýtist til þess að áætla umfang vandans og varða leiðina til þess að útrýma þessum vágesti.
    Áþekk skýrslubeiðni var lögð fram á 149. löggjafarþingi og var hún umfangsmeiri og beint til forsætisráðherra. Þeirri skýrslubeiðni hefur nú verið skipt í tvennt og beint til þeirra ráðherra sem fara með málefnasvið sem rakaskemmdir í fasteignum og áhrif þeirra falla undir, þ.e. til innviðaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra.