Ferill 240. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 395  —  240. mál.
Leiðréttur texti.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra.


     1.      Hver er frá og með árinu 2018 árlegur fjöldi utanlandsferða ráðherra, og þeirra sem fóru með málefnasvið hans, vegna starfa á vegum ráðuneytis?
    Ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar var stofnað 1. febrúar 2022 og hafa ferðir ráðherra vegna starfa á vegum ráðuneytisins verið þrjár frá þeim tíma.

     2.      Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga vegna þessara ferða?
    Dagpeningagreiðslur (fæði og annar kostnaður, þ.e. daghluti) vegna þessara ferða voru 155.049 kr.

     3.      Hversu oft á hverju ári fékk ráðherra 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta?
    Á ekki við.

     4.      Hverjar voru árlegar fjárhæðir vegna hótelgistingar ráðherra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
    Greiðslur á tímabilinu vegna hótelgistingar voru 203.162 kr. og vegna ferðakostnaðar 297.265 kr.

     5.      Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytis og í hve mörgum tilfellum endurgreiddi ráðherra þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
    Almennt gildir að ráðherra sé ekið á flugvöll í bifreiðum ráðuneytis vegna ferða hans í tengslum við starf sitt. Í reglum um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra kemur fram að ráðherrum skulu greiddir dagpeningar vegna fæðis og annars kostnaðar, þ.e. daghluta. Greiðsla fyrir hverja ferð ræðst af fjölda ferðadaga en ekki vægi einstakra kostnaðarliða. Ekki hefur komið til endurgreiðslu á dagpeningum.

     6.      Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem ráðherra naut erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?
    Á ekki við.

     7.      Ef við á, hvenær komst hefð á að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda í ferðum ráðherra?
    Á ekki við.

     8.      Ef við á, til hvaða aðgerða hefur verið gripið vegna ofgreiddra dagpeninga áður en farið var að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda samkvæmt reglum um ferðakostnað og dagpeninga?
    Á ekki við.