Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 454  —  368. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur um greiðslur til fyrirtækja í velferðarþjónustu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mikið hafa ríki og sveitarfélög greitt fyrirtækjum í velferðarþjónustu sem rekin eru í hagnaðarskyni fyrir þjónustu sína, sundurliðað eftir fyrirtækjum og árum á tímabilinu 2012–2022?
     2.      Hversu háar arðgreiðslur hafa fyrrgreind fyrirtæki greitt sér á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir fyrirtækjum og árum?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að takmarka arðgreiðslur í velferðarþjónustu?

    
    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur ekki gert samninga við fyrirtæki í velferðarþjónustu sem rekin eru í hagnaðarskyni fyrir þjónustu sína. Þeir samningar sem gerðir hafa verið um þjónustukaup á málefnasviðum ráðuneytisins, sem ekki falla undir starfsemi stofnana ráðuneytisins, hafa hingað til verið við óhagnaðardrifin félagasamtök.