Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 782  —  303. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Sveinbjarnardóttur um geislafræðinga.


     1.      Hve mörg stöðugildi geislafræðinga voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
    Árið 2016 voru 69,4 stöðugildi geislafræðinga á Landspítalanum og 7 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Árið 2021 var 93,1 stöðugildi geislafræðings á Landspítalanum og 8,6 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

     2.      Hversu margir geislafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
    Árið 2016 voru 94 starfandi geislafræðingar á Landspítalanum og 10 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Árið 2021 var 121 starfandi geislafræðingur á Landspítalanum og 11 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

     3.      Hve mörg stöðugildi geislafræðinga voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda stöðugilda geislafræðinga eftir heilbrigðisumdæmum fyrir árin 2016 og 2021:

Geislafræðingar

Stofnun
2016
Stöðugildi
2021
Stöðugildi
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins 0

0
Einkareknar heilsugæslur 0 0
Reykjavíkurborg 0 0
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 0 0
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 1,6 2
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 3,9 3,5
Heilbrigðisstofnun Austurlands 1,05 0,79
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 2,57 5,7
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2,8 2,4
Stöðugildi geislafræðinga alls 11,92 14,39


     4.      Hversu margir geislafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda starfandi geislafræðinga á heilsugæslum eftir heilbrigðisumdæmum:

Geislafræðingar
Stofnun
2016


Fjöldi starfsmanna
2021
Fjöldi starfsmanna
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins 0 0
Einkareknar heilsugæslur 0 0
Reykjavíkurborg 0 0
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 0 0
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 2 3
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 5 5
Heilbrigðisstofnun Austurlands 2 1
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 4 8
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 8 5
Geislafræðingar alls 21 22
                        
     5.      Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
    Nei. Ráðuneytið hefur ekki sett viðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum.
    Landsráð um menntun og mönnun var stofnað í maí 2021. Hlutverk þess er að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana ráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á þessu sviði þvert á menntastofnanir, fagfélög, sjúklingasamtök og aðra hagsmunaaðila.
    Í ráðuneytinu fer einnig fram vinna við umfangsmikla mönnunargreiningu þvert á heilbrigðiskerfið sem mun hjálpa til við að kortleggja mönnun nú og þörfina til framtíðar. Mönnunarþörf geislafræðinga þarf að greina út frá fjölmörgum breytum. Meðal annars þarf að taka tillit til breyttrar aldurssamsetningar samfélagsins, mannfjöldaþróunar, fjölda ferðamanna, fjármagns, verkefnis hverrar stofnunar og skipulags vinnunnar.

     6.      Hefur ráðuneytið skilgreint störf geislafræðinga í heilbrigðiskerfinu og hvort störf þeirra eða hluti starfa þeirra geti verið unninn af öðrum fagstéttum í heilbrigðiskerfinu?
    Nei. Ráðuneytið hefur ekki skilgreint störf geislafræðinga í heilbrigðiskerfinu umfram það sem fram kemur í reglugerð nr. 1105/2012 um menntun, réttindi og skyldur geislafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðin er sett á grundvelli laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012. Markmið laga um heilbrigðisstarfsmenn er að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur um menntun, kunnáttu og færni heilbrigðisstarfsmanna og starfshætti þeirra. Í 4 gr. laga um heilbrigðisstarfmenn, segir: „Rétt til að nota starfsheiti löggiltrar heilbrigðisstéttar skv. 3. gr. og starfa sem heilbrigðisstarfsmaður hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.“ Samkvæmt 25 gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40 /2007, hefur landlæknir eftirlit með að heilbrigðisþjónusta uppfylli faglegar kröfur til reksturs heilbrigðisþjónustu og ákvæði heilbrigðislöggjafar á hverjum tíma.
    Einnig segir í 15. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002, um læknisfræðilega geislun að ábyrgðarmaður skv. 10. gr. beri ábyrgð á framkvæmd læknisfræðilegrar geislunar. Hann skuli sjá til þess að þeir einir framkvæmi læknisfræðilega geislun sem eru til þess hæfir á grundvelli viðurkenndrar sérmenntunar.
    Það er hlutverk hverrar stofnunar fyrir sig að tryggja að hæfni, menntun og reynsla hverrar starfsstéttar nýtist sem best og stuðla að teymisvinnu.
    Þá kveða allar reglugerðir heilbrigðisstétta á um að heilbrigðisstarfsmenn viðkomandi stéttar skuli þekkja skyldur sínar og virða faglegar takmarkanir sínar og eftir atvikum óska eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef þeir telja sig ekki geta veitt honum viðeigandi þjónustu.

     7.      Hvert er lágmarksviðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
    Ráðuneytið hefur ekki sett lágmarksviðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum, sbr. svar við 5. tölul. fyrirspurnar.
    Ekkert einhlítt svar er við því hvert rétt mönnunarviðmið sé. Almennt er það skilgreint út frá starfsemi hverrar einingar eða deildar. Einingin getur verið heilsugæsla, mismunandi deildir sjúkrahúsa, hjúkrunardeildir eða hjúkrunarheimili. Mikill breytileiki getur einnig verið í umfangi starfsemi hverrar einingar. Taka þarf tillit til stærðar, íbúafjölda á hverjum stað og samsetningar innbyrðis, eins og aldursdreifingar íbúa, auk sveiflu í þörf fyrir þjónustu, svo sem tengdri ferðaþjónustu. Við skipulag mönnunar líta stofnanir einnig til fjárveitinga/fjárheimilda og aðgengis að starfsfólki. Þannig getur verið munur á skipulagi mönnunar heilbrigðisstarfsfólks eftir landssvæðum.
    Við rekstur heilsugæslustöðva á landsbyggðinni er fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni til viðmiðunar, útg. 2022 (september). Almennt byggjast greiðslur til stöðvanna á fjölda skráðum á stöðina, lýðfræðilegri samsetningu og einkennum. Tekið er mið af aldri, kyni, mældri sjúkdómsbyrði, félagslegum aðstæðum einstaklinga, mældum þjónustuþáttum o.s.frv. Þegar um er að ræða minnstu stöðvarnar á landsbyggðinni er greitt sérstakt smæðarálag.
    Landspítalinn skilgreinir ekki lágmarksviðmið um mönnun geislafræðinga, heldur miðar við fjármögnuð stöðugildi sem lágmarksstöðugildi. Hvað snertir starfsemi rannsóknarþjónustu Landspítala er annars vegar horft til öryggisviðmiða og hins vegar raunmönnunar. Landspítali er að hefja það verkefni að greina betur eigin viðmið mönnunar út frá sinni starfsemi.
Viðmið Sjúkrahússins á Akureyri hafa miðast við fjárheimildir og hvernig aðgengi er að starfsfólki. Sjúkrahúsið er að hefja það verkefni að greina betur eigin viðmið mönnunar.
    Að lokum má nefna að allar stofnanirnar eru með svokallaða verkfallslista sem sendir eru til stéttarfélaga. Slíkir listar eru hugsaðir sem öryggislistar, þar sem skilgreind er lágmarksmönnun til að halda starfseminni gangandi til skemmri tíma.

     8.      Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt geislafræðinga?
    Samkvæmt Félagi geislafræðinga er meðalaldur geislafræðinga 44 ár samkvæmt félagatali. Konur eru 92% geislafræðinga og karlar 8%. Ekki liggja fyrir upplýsingar um önnur kyn.
     9.      Hversu mörg stunda nám í geislafræði til BS-gráðu (180 ECTS)?
    Alls leggja 45 einstaklingar stund á nám til BS-gráðu í geislafræði við Háskóla Íslands.