Ferill 598. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 947 — 598. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um innritun í verk- og iðnnám.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
1. Hvað hyggst ráðherra veita fjármagn fyrir innritun margra nemenda í Tækniskólann í haust?
2. Hvaða augum lítur ráðherra þá staðreynd að hundruðum umsókna um nám í verk- og iðngreinum er hafnað ár hvert?
3. Hefur ráðherra uppi áform um að auka fyrirsjáanleika í fjárveitingum fyrir Tækniskólann?
4. Hvaða aðgerðir er ráðherra með í undirbúningi og hefur komið til framkvæmda til að auka aðgengi að verk- og iðnnámi?
5. Er ráðherra með sérstakar aðgerðir til að auka aðgengi eldri nemenda að verk- og iðnnámi í undirbúningi eða hefur komið til framkvæmda?
Skriflegt svar óskast.