Ferill 683. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1053  —  683. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um námslánatöku eftir búsetu.

Frá Loga Einarssyni.


     1.      Hver var fjöldi háskólanema á tímabilinu 2012–2022, sundurliðað eftir árum og lögheimili?
     2.      Hver var fjöldi lántakenda námslána á tímabilinu 2012–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, lögheimili, á hvaða námsári lántaka hófst og hversu lengi lán var tekið.


Skriflegt svar óskast.