Ferill 696. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1068  —  696. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um villidýralög og sjávarspendýr.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvaða ástæða er fyrir því að frumvarp til laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum var fellt niður á endurskoðaðri þingmálaskrá yfirstandandi þings? Hvenær má vænta þess að ráðherra leggi frumvarpið fram?
     2.      Hvaða samtal hefur átt sér stað á milli ráðuneyta um flutning málefna sjávarspendýra frá matvælaráðuneytinu yfir til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins frá því að ráðherra svaraði fyrirspurn þess efnis á 152. löggjafarþingi (þskj. 1130, 662. mál)?
     3.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að málefni sjávarspendýra verði færð undir lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum?


Skriflegt svar óskast.