Ferill 720. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1096  —  720. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um neyðarástand fjarskipta.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hver er staða neyðarbirgða í landinu af íhlutum til fjarskipta í ljósi þess hve rekstur samfélagsins er háður fjarskiptainnviðum?
     2.      Er til staðar aðgerðaáætlun í ráðuneytinu ef til kemur rof á fjarskiptum með tilliti til rafrænna skilríkja, rafrænna greiðslna, kredit- og debetkortagreiðslna og þess háttar? Ef svo er, hver er hún?


Skriflegt svar óskast.