Ferill 770. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1163 — 770. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um stafrænar umbætur í heilbrigðiskerfinu.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Er unnið að stafrænum umbótum í heilbrigðiskerfinu í samstarfi við verkefnastofuna Stafrænt Ísland? Ef svo er, hvaða umbótum?
2. Er unnið að því að gera sjúkraskrár aðgengilegar öllum þjónustuveitendum í heilbrigðiskerfinu í einum miðlægum gagnagrunni?
Skriflegt svar óskast.