Ferill 653. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1214 — 653. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um hindranir fjölmiðla á Keflavíkurflugvelli.
1. Hefur ráðherra aflað sér upplýsinga um af hverjum og á hvaða forsendum og grundvelli, þ.m.t. lagalegum heimildum, ákvörðun var tekin um að beina flóðljósum að fjölmiðlafólki, sem hindraði störf þess aðfaranótt 3. nóvember 2022 á Keflavíkurflugvelli?
Aðgerðirnar á Keflavíkurflugvelli voru á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins og undirstofnana þess. Fljótlega eftir atvikið baðst Isavia ohf. afsökunar á aðkomu sinni, en fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með hlutabréf Isavia.
2. Telur ráðherra að sú ákvörðun sem getið er í lið 1 hafi verið í samræmi við alþjóðlega mannréttindasáttmála, íslensk lög og hefðbundnar verklagsreglur?
Fram hefur komið í yfirlýsingu aðila sem báru ábyrgð á aðgerðunum að taka ferli og verklag til endurskoðunar til að fyrirbyggja óskýrleika á vettvangi.
3. Brást ráðuneytið við ofangreindum atvikum á einhvern hátt? Ef svo er, hvernig? Ef ekki, af hverju ekki?
Framkvæmd atburðanna og ábyrgð á aðgerðum var hjá dómsmálaráðuneytinu og undirstofnunum þess.