Ferill 812. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1251  —  812. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um Íslandsbanka.

Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.


     1.      Telur ráðherra rétt að ríkið, sem eigandi tæplega helmings hluta í Íslandsbanka, taki afstöðu til samruna við annan eða aðra banka með tilliti til samkeppni á fjármálamarkaði?
     2.      Telur ráðherra að önnur sjónarmið en samkeppnissjónarmið og hagsmunir neytenda eigi að ráða afstöðu fulltrúa ríkisins?


Skriflegt svar óskast.