Ferill 839. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1299 — 839. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um kulnun.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Er til læknisfræðileg greining á kulnun? Ef svo er, hver eru greiningarskilmerki kulnunar?
2. Hver er tíðni læknisfræðilegrar greiningar á kulnun og hvernig hefur hún þróast undanfarin ár?
3. Hvert er umfang tilvísana og vottorða þar sem kulnun er tilgreind sem ástæða?
Skriflegt svar óskast.