Ferill 851. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1320 — 851. mál.
Fyrirspurn
til menningar- og viðskiptaráðherra um fjárveitingu vegna reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða tilteknu fjölmiðlar fengu 100 millj. kr. fjárveitingu samkvæmt tillögu meiri hluta fjárlaganefndar ,,vegna reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöð“ eins og tilgreint er í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar á þskj. 699 á yfirstandandi þingi?
2. Hvernig skiptist fjárveitingin á milli fjölmiðla?
Skriflegt svar óskast.