Ferill 875. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1371  —  875. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um hindranir fjölmiðla á Keflavíkurflugvelli.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvert er mat ráðherra á þeirri atburðarás sem átti sér stað aðfaranótt 3. nóvember 2022 á Keflavíkurflugvelli þegar flóðlýsingu var beint að fjölmiðlum til að hindra störf þeirra, með tilliti til alþjóðlegra mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að sem og íslenskra laga?
     2.      Brást ráðuneytið við ofangreindum atvikum á einhvern hátt? Ef svo er, hvernig? Ef ekki, af hverju ekki? Vísast hér til þess að menningar- og viðskiptaráðherra metur það svo að beina skuli þessari fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra í svari á þskj. 1246 á yfirstandandi þingi.


Skriflegt svar óskast.