Ferill 963. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1507  —  963. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um krabbameinsgreiningar.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


    Safnar ráðuneytið tölfræðiupplýsingum um hve oft einstaklingar þurfa að leita til læknis áður en þeir greinast með krabbamein? Ef svo er, kemur þar fram á hvaða stigi krabbameinið var þegar það loks greindist? Ef slík tölfræði er ekki til, stendur til að taka slíkar tölur saman?


Skriflegt svar óskast.