Ferill 965. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1509  —  965. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


     1.      Hver er staða aðgerðaáætlunar til að fækka sjálfsvígum á Íslandi, sundurliðuð eftir undirmarkmiðum?
     2.      Hvaða fjármunum var varið til aðgerðaáætlunarinnar árin 2022 og 2023?
     3.      Hvernig er árangur af aðgerðum í aðgerðaáætluninni mældur?
     4.      Lítur út fyrir að aðgerðaáætlunin sé að skila árangri?


Skriflegt svar óskast.