Ferill 997. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1582  —  997. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um úthlutanir úr Kvikmyndasjóði.

Frá Óla Birni Kárasyni.


     1.      Hver er fjárhæð vilyrða og veittra framleiðslustyrkja Kvikmyndasjóðs fyrir leikið sjónvarpsefni? Svar óskast sundurliðað eftir árunum 2015–2023.
     2.      Hvaða sjónvarpsstöð átti fyrst sýningarrétt þeirra verkefna sem hlotið hafa vilyrði eða framleiðslustyrk fyrir leikið sjónvarpsefni frá Kvikmyndasjóði? Svar óskast sundurliðað eftir árunum 2015–2023.


Skriflegt svar óskast.