Ferill 1037. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1656  —  1037. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um fjölda íbúa í íbúðum.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Í hversu mörgum íbúðum á enginn sér skráð lögheimili, í hversu mörgum íbúðum á einn sér skráð lögheimili, í hversu mörgum íbúðum eiga tveir sér skráð lögheimili, og svo framvegis?
     2.      Hversu margir eiga sér ekki skráð lögheimili neins staðar?
     3.      Stemmir fjöldi þeirra sem eiga sér skráð lögheimili við fjölda íbúa á Íslandi? Ef svo er ekki, hverju munar?


Skriflegt svar óskast.