Ferill 1101. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1808 — 1101. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um framhaldsskóla.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Hvert var fjárframlag ríkisins á ári hverju síðustu fimm ár vegna hvers nemendaígildis á framhaldsskólastigi, sundurliðað eftir skólum?
2. Hvert var heildarfjárframlag ríkisins á ári hverju síðustu fimm ár til skóla sem bjóða upp á kennslu á framhaldsskólastigi, sundurliðað eftir skólum?
3. Hver var heildarfjöldi nemendaígilda á framhaldsskólastigi á ári hverju síðustu fimm ár, sundurliðað eftir skólum?
Skriflegt svar óskast.