Ferill 1106. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1817 — 1106. mál.
Fyrirspurn
til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna.
Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.
1. Hver er staða endurskoðunar laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, samkvæmt ákvæði til bráðabirgða VIII í þeim lögum?
2. Hyggst ráðherra hafa samráð við hagsmunaaðila við endurskoðun laganna og ef svo er, hverja?
3. Hvenær hyggst ráðherra kynna niðurstöður endurskoðunar laganna og eftir atvikum fyrirhugaðar breytingar á þeim?
Skriflegt svar óskast.