Ferill 1117. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1851 — 1117. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um hjúkrunarrými á Vesturlandi.
Frá Teiti Birni Einarssyni.
1. Hvaða áform eru uppi um fjölgun rýma á hjúkrunarheimilum á Vesturlandi og hvað ræður ákvörðun um staðsetningu? Er horft til aðsóknar og biðlista í hverju sveitarfélagi við slíka ákvörðun?
2. Stendur til að fjölga hjúkrunarrýmum á Akranesi þar sem flestir sækja um vistun á Vesturlandi?
3. Hvernig er fjármagn tryggt til þeirra hjúkrunarheimila þar sem hátt hlutfall vistmanna er í mikilli þjónustuþörf?
Skriflegt svar óskast.