Ferill 1170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2034 — 1170. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um kærur vegna úthlutunar á byggðakvóta.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Hve oft hafa ráðuneytinu borist kærur vegna ákvarðana um úthlutun á almennum byggðakvóta, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða, á ári hverju sl. 10 ár?
2. Hve oft hafa ráðuneytinu borist kærur vegna ákvarðana um úthlutun á sértækum byggðakvóta, sbr. 10. gr. a. laga um stjórn fiskveiða, á ári hverju sl. 10 ár?
Skriflegt svar óskast.