Ferill 1083. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2087  —  1083. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um netöryggi.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða samræmdu reglur og viðmið gilda í ráðuneytinu um lykilorð? Hvaða ferlar eru til staðar til að endurskoða þau og bregðast við ef upp kemur gagnaleki eða aðrar hættur varðandi netöryggi?

    Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, sinnir upplýsingatæknimálum og ýmsum sameiginlegum rekstrarþáttum fyrir ráðuneytin og samræmir m.a. viðmið varðandi lykilorð og önnur netöryggismál. Tryggt er að lykilorð séu endurnýjuð reglulega og uppfylli fyrir fram ákveðin skilyrði. Sjálfvirkt ferli minnir starfsmenn á aldur lykilorðs og lokar á aðganginn sé því ekki breytt innan tímaramma. Að auki er tveggja þátta auðkenningar krafist þar sem við á. Ferlar eru til staðar ef nauðsyn er að loka aðgöngum og kalla fram endurnýjun tiltekinna eða allra lykilorða. Það er ekki talið þjóna markmiðum upplýsingaöryggis í ráðuneytinu að gera ítarlegri upplýsingar um stýringar lykilorða opinberar.