Ferill 976. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2101  —  976. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).

Frá 1. minni hluta atvinnuveganefndar.


Almennt.
    Frumvarp þetta leggur til að færa grásleppuna inn í gjafakvótakerfið og skerða þar með atvinnufrelsi landsmanna. Það má aðeins takmarka atvinnufrelsið ef almannahagsmunir krefjast þess, sbr. 75 gr. stjórnarskrárinnar. Við umfjöllun málsins í atvinnuveganefnd kom skýrt fram hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar og matvælaráðuneytis að ekkert benti til þess að grásleppa væri ofveidd og að núverandi stjórnun stofnsins næði ekki markmiðum um fiskvernd. Það gefur augaleið að með samþykkt frumvarpsins yrði lögfest ákvæði sem brytu í bága við þá stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem þingmenn hafa svarið eið að vernda.

Frumvarpið stuðlar ekki að þeim markmiðum sem liggja því til grundvallar.
    Markmið frumvarpsins var sagt vera að stuðla að;
     a.      verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna Íslands og tryggja þannig trausta atvinnu og byggð í landinu,
     b.      auknum fyrirsjáanleika og hagkvæmari veiðum,
     c.      sjálfbærni veiða og vera hvatning til nýsköpunar þar sem aðilar reyna að fá sem mest verðmæti úr aflahlut sínum,
     d.      að bættri umgengni um auðlindina og minnka óæskilegan meðafla,
     e.      einföldun á stjórnsýslu og eftirliti.
    Við yfirferð málsins kom skýrt fram að frumvarpið næði engu af framangreindum markmiðum heldur stuðlaði í sumum tilfellum að hinu gagnstæða:
     a.      Reynslan af kvótasetningu aflaheimilda á liðnum árum gefur til kynna að það muni eiga sér stað mjög hröð samþjöppun veiðiheimilda ef frumvarpið verður að lögum. Sömuleiðis færi stór hluti handhafa grásleppuleyfa ekki nægjanlega mikla úthlutun til þess að hagkvæmt verði að hefja veiðar. Þær sjávarbyggðir sem standa veikast fara án nokkurs efa verst út úr samþjöppuninni og því er allt tal um að frumvarpið stuðli að traustri byggð hrein öfugmæli. Vissulega eru settar upp varnir í frumvarpinu með það að markmiði að koma í veg fyrir samþjöppun, en það er víst að þær halda jafn vel og þau ákvæði sem nú eru um kvótaþak tengdra aðila í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með öðrum orðum – eða alls ekki.
     b.      Skýrt kom fram hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar að kvótasetningin hefði engin áhrif á fyrirsjáanleika, þ.e. hvenær veiðiráðgjöf yrði tilkynnt, en hún byggist annars vegar á niðurstöðum stofnmats botnfiska að vori og hins vegar að hluta til á stofnmati botnfiska frá árinu áður.
     c.      Það á við um íslenska sjómenn sem og aðra landsmenn að þeir reyna að gera sem best i sinni vinnu og búa til sem mest verðmæti úr því sem þeir eru að fást við.  Það er hins vegar fyrirsjáanlegt að frumvarpið leiðir það af sér að fjöldi útgerða fær til sín of litlar aflaheimildir til þess að útgerð borgi sig.
     d.      Meðafli er háður veiðitímabili, fjölda neta sem eru í sjó og algerlega ófyrirséðum þáttum á borð við fiskgengd annarra fiska á veiðislóðinni og sömuleiðis ætisleit sjávarspendýra og fugla á slóðinni. Mikilvægt er því að tryggja að smábátasjómenn hafi bæði svigrúm til þess að landa meðafla og fénýta hann, auk þess að takmarka fjölda neta í sjó.
     e.      Það gætir greinilega mikils misskilnings hjá frumvarpshöfundum að kvótasetning leiði bæði til einfaldari stjórnsýslu og eftirlits.  Við yfirferð málsins kom skýrt fram að áfram þyrfti að fylgjast með veiðitímabili, m.a. til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstur æðabænda og grásleppukarla. Sama á við um fjölda neta í sjó en hvorki hvalir né selir gera greinarmun á netum, eftir því hvort netin eru í kvótakerfi eða sóknardagakerfi, eða þá að netin verði greinilegri í fyrrnefnda kerfinu fyrir þorsk og annan meðafla.

Vinnubrögð matvælaráðherra.
    
Ámælisvert er við vinnslu frumvarpsins að svo virðist sem matvælaráðuneytið hafi sniðgengið heildarsamtök smábátasjómanna, LS, og ekki svarað rökstuddum athugasemdum þeirra efnislega. Í stað þess hefur ráðuneytið gert málflutning klofningshópa einstaka grásleppuútgerða, sem hafa yfir nokkurri veiðireynslu að ráða, að sínum. Ekki þarf að koma á óvart að nokkur hluti núverandi handhafa grásleppuleyfa sé fylgjandi hlutdeildarsetningu. Eignarhald á varanlegum aflaheimildum getur tryggt mönnum verðmæta söluvöru þegar menn ákveða að hætta útgerð. Eðlilega geta þeir hagsmunir haft mikil áhrif á afstöðu þeirra hvað hlutdeildarsetningu varðar og eru þá tínd saman hin ýmsu rök sem standast ekki nánari skoðun.

Hagsmunir eigenda sjávarjarða.
    Nokkur hluti af grásleppuveiðum fer óumdeilanlega innan netlaga, þ.e. eignarlanda sjávarjarða, og því felur frumvarpið í sér að verið sé að gera hlunnindi jarðanna að söluvöru, án nokkurs samráðs við landeigendur.

Alþingi, 9. júní 2023.

Sigurjón Þórðarson.