Ferill 1207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2137  —  1207. mál.




Fyrirspurn


til matvælaráðherra um alifuglabú.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


    Hvaða alifuglabú eru starfrækt á landinu? Þess er óskað að fram komi upplýsingar um staðsetningu, stærð og eiganda hvers bús.


Skriflegt svar óskast.