Ferill 1127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2186  —  1127. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um útboð Vegagerðarinnar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu oft undanfarin fimm ár hefur Vegagerðin hafnað lægsta boði í útboðum og hvers vegna? Svar óskast sundurliðað eftir árum.

    Árið 2018 hafnaði Vegagerðin lægsta boði í útboði níu sinnum. Í fimm tilfellum var öllum tilboðum hafnað þar sem þau voru verulega yfir kostnaðaráætlun verkanna. Í tveimur tilfellum sagði lægstbjóðandi sig frá verkinu vegna annarra verkefna, í einu tilfelli sagði lægstbjóðandi sig frá verkinu vegna reiknivillu í tilboðsgerð og í einu tilfelli var tilboð lægstbjóðanda ógilt vegna ófullnægjandi gagna. Alls voru undirritaðir 103 samningar á árinu.
    Árið 2019 hafnaði Vegagerðin lægsta boði í útboði ellefu sinnum. Í fimm tilfellum var öllum tilboðum hafnað þar sem þau voru verulega yfir kostnaðaráætlun. Í fimm tilfellum uppfyllti lægstbjóðandi ekki hæfiskröfur (t.d. um verkreynslu) og í einu tilfelli var öllum tilboðum hafnað vegna fjárheimilda, útboði breytt og það boðið út aftur. Alls voru undirritaðir 123 samningar á árinu.
    Árið 2020 hafnaði Vegagerðin lægsta boði í útboði fjórum sinnum. Í tveimur tilfellum var öllum tilboðum hafnað þar sem þau voru verulega yfir kostnaðaráætlun. Í einu tilfelli uppfyllti lægstbjóðandi ekki hæfiskröfur um verkreynslu og í öðru tilfelli var útboðið byggt á grundvelli matslíkans þar sem horft var á verð sem og hæfni. Alls voru undirritaðir 97 samningar á árinu.
    Árið 2021 hafnaði Vegagerðin lægsta boði í útboði ellefu sinnum. Í átta tilfellum var öllum tilboðum hafnað þar sem þau voru verulega yfir kostnaðaráætlun. Í tveimur tilfellum sagði verktaki sig frá verkinu og í einu tilfelli uppfyllti lægstbjóðandi ekki hæfiskröfur þar sem eigið fé var neikvætt. Alls voru undirritaðir 102 samningar á árinu.
    Árið 2022 hafnaði Vegagerðin lægsta boði í útboði níu sinnum. Í sjö tilfellum var öllum tilboðum hafnað þar sem þau voru verulega yfir kostnaðaráætlun. Í tveimur tilfellum var útboðið byggt á grundvelli matslíkans þar sem horft var á verð sem og hæfni. Alls voru undirritaðir 64 samningar á árinu.