Ferill 1034. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2250 — 1034. mál.
Svar
heilbrigð isráðherra við fyrirspurn frá Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur um lækna.
1. Hver var meðalaldur fastráðinna lækna á heilsugæslustöðvum árin 2017–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum og heilsugæslustöðvum.
Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir ofangreindum upplýsingum frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST), Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Þá óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) vegna þeirra aðila sem starfa samkvæmt samningi við SÍ. Svör bárust ekki frá öllum framangreindum aðilum sem óskað var gagna frá.
Í töflu 1 má finna upplýsingarnar birtar eins og þær bárust frá umræddum aðilum, upplýsingarnar eru ekki tæmandi útlistun á öllum einingum heilbrigðiskerfisins og byggjast á aðsendum gögnum eins og þau bárust.
Tafla 1: Meðalaldur fastráðinna lækna á heilsugæslustöðvum árin 2017–2022.
Stofnun | Heilsugæsla | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 |
HH | Árbær | 57 | 54 | 55 | 55 | 53 | 55 |
HH | Efra-Breiðholt | 54 | 53 | 53 | 56 | 52 | 50 |
HH | Efstaleiti | 46 | 45 | 46 | 47 | 54 | 53 |
HH | Fjörður | 50 | 51 | 52 | 53 | 56 | 53 |
HH | Garðabær | 56 | 57 | 54 | 54 | 58 | 58 |
HH | Glæsibær | 58 | 54 | 52 | 56 | 51 | 52 |
HH | Grafarvogur | 50 | 55 | 58 | 56 | 58 | 55 |
HH | Hamraborg | 57 | 57 | 58 | 59 | 58 | 55 |
HH | Hlíðar | 55 | 50 | 48 | 49 | 50 | 53 |
HH | Hvammur | 57 | 58 | 57 | 52 | 53 | 51 |
HH | Miðbær | 56 | 56 | 58 | 59 | 60 | 62 |
HH | Mjódd | 59 | 60 | 62 | 51 | 43 | 44 |
HH | Mosfellsumdæmi | 59 | 49 | 52 | 47 | 42 | 58 |
HH | Seltjarnarnes | 53 | 47 | 48 | 50 | 51 | 50 |
HH | Sólvangur | 49 | 50 | 49 | 50 | 50 | 52 |
HH | Geðheilsuteymi austur | 37 | 38 | 39 | 40 | 42 | 47 |
HH | Geðheilsuteymi suður | 41 | 44 | 51 | |||
HH | Geðheilsuteymi vestur | 41 | 42 | 47 | 48 | 49 | |
HH | Geðheilsuteymi ADHD | 45 | |||||
HH | Geðheilsuteymi barna | 48 | |||||
HH | Geðheilsuteymi fangelsi | 66 | 59 | 50 | |||
HH | Geðheilsuteymi fjölskylduvernd | 52 | 62 | ||||
HH | Heilaörvunarmiðstöð | 43 | |||||
HH | Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana | 49 | 50 | ||||
HH | Heilbrigðisskoðun innflytjenda | 49 | 56 | 57 | 65 | 66 | 42 |
HH | Héraðsvakt | 66 | 62 | 60 | 56 | 54 | 55 |
HH | Kvenheilsa | 55 | 59 | ||||
HH | Samhæfingarstöð krabbameinsskimana | 47 | 48 | ||||
HH | Þroska- og hegðunarstöð | 56 | 44 | 45 | 46 | 44 | 42 |
HVE | Akranes | 55 | |||||
HVE | Borgarnes | 53 | |||||
HVE | Búðardalur | 62 | |||||
HVE | Hvammstangi | 62 | |||||
HSA | Djúpivogur | 60 | 64 | 32 | 25 | 26 | |
HSA | Reyðarfjörður, Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður | 49 | 43 | 35 | 37 | 39 | 33 |
HSA | Neskaupstaður | 48 | 38 | 37 | 39 | 38 | 36 |
HSA | Seyðisfjörður | 57 | 36 | 54 | 55 | 56 | 57 |
HSA | Egilsstaðir | 38 | 37 | 38 | 37 | 36 | 34 |
HSA | Vopnafjörður | 59 | 60 | 61 | 62 | 63 | 64 |
HSS | Keflavík | 47,9 | 45,6 | 45,9 | 45,6 | 46,3 | 50,3 |
HSS | Grindavík | 45,5 | 46,5 | 47,5 | 48,5 | 49,5 | 50,5 |
Heilsugæslan Urðarhvarfi | 45,2 | 46,2 | 44,6 | 43,4 | 43,4 | 40,8 |
2. Hver var meðalaldur fastráðinna lækna á öðrum heilbrigðisstofnunum á sama bili? Svar óskast sundurliðað eftir árum, heilbrigðisumdæmum og stofnunum.
Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir ofangreindum upplýsingum frá Landspítalanum (LSH), Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) HVE, HVEST, HSN, HSA, HSU og HSS. Þá óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) vegna þeirra aðila sem starfa samkvæmt samningi við SÍ. Svör bárust ekki frá öllum aðilum.
Í eftirfarandi töflum má sjá útlistun á meðalaldri fastráðinna lækna á öðrum stofnunum en þeim sem voru tilgreindar í 1. tölul. fyrirspurnarinnar og eru upplýsingarnar birtar eins og þær bárust. Jafnframt ber þess að geta að ekki er um að ræða tæmandi útlistun á öllum einingum heilbrigðiskerfisins heldur byggir svarið á aðsendum gögnum.
Tafla 2: Meðalaldur fastráðinna lækna á öðrum stofnununum árin 2017–2019.
Stofnun | Heilbrigðisumdæmi | Tegund | Nafn | 2017 | 2018 | 2019 |
LSH | Sjúkrahús | Landspítalinn | 52,3 | 52,2 | 52,7 | |
SAk | Sjúkrahús | Sjúkrahúsið á Akureyri | 51,6 | 51,0 | 52,0 | |
HSA | Austurland | Sjúkrahús | Neskaupstaður | 54,0 | 54,0 | 51,0 |
HSA | Austurland | Hjúkrunar-/dvalarheimili | Fossahlíð Seyðisfirði | 57,0 | 58,0 | 54,0 |
HSA | Austurland | Hjúkrunar-/dvalarheimili | Dyngja Egilsstöðum | 47,0 | 48,0 | 48,0 |
HSU | Suðurland | Heilbrigðisst. Suðurlands | Samtals | 48,0 | 48,9 | 48 ,0 |
HSS | Suðurnes | Hjúkrunar-/dvalarheimili | Víðihlíð | 51,0 | 52,0 | 53,0 |
HSS | Suðurnes | Sjúkrahús | Slysa- og bráðamóttaka | 42,0 | 60,0 | 61,0 |
HSS | Suðurnes | Sjúkrahús | Legudeild | 58,0 | 56,0 | 51,0 |
Hjúkrunar-/dvalarheimili | Roðasalir | 65,0 | 66,0 | 67,0 | ||
Aðrar stofnanir | Heilsustofnun NLFÍ | 63,5 | 64,5 | 65,5 | ||
Aðrar stofnanir | Reykjalundur | 55,0 | 56,0 | 54,0 | ||
Hjúkrunar-/dvalar heimili | Sólvellir | 45,0 | 45,0 | 45,0 | ||
Hjúkrunar-/dvalarheimili | Hjallatún | 63,0 | 64,0 | 65,0 | ||
Sjúkrahúsið Vogur | Vogur | 48,6 | 49,6 | 53,5 | ||
Hjúkrunar-/dvalarheimili | Fellsendi | 57,0 | 58,0 | 59,0 |
Tafla 3: Meðalaldur fastráðinna lækna á öðrum stofnununum árin 2020–2022.
Stofnun | Heilbrigðisumdæmi | Tegund | Nafn | 2020 | 2021 | 2022 |
LSH | Sjúkrahús | Landspítalinn | 53,0 | 53,3 | 52,9 | |
SAk | Sjúkrahús | Sjúkrahúsið á Akureyri | 51,8 | 52,2 | 52,1 | |
HSA | Austurland | Sjúkrahús | Neskaupstaður | 49,0 | 52,0 | 51,0 |
HSA | Austurland | Hjúkrunar-/dvalarheimili | Fossahlíð Seyðisfirði | 55,0 | 56,0 | 57,0 |
HSA | Austurland | Hjúkrunar-/dvalarheimili | Dyngja Egilsstöðum | 49,0 | 47,0 | 52,0 |
HSU | Suðurland | Heilbrigðisst. Suðurlands | Samtals | 42,9 | 42,6 | 43 |
HSS | Suðurnes | Hjúkrunar-/dvalarheimili | Víðihlíð | 54,0 | 55,0 | 56,0 |
HSS | Suðurnes | Sjúkrahús | Slysa- og bráðamóttaka | 62,0 | 62,5 | 63,5 |
HSS | Suðurnes | Sjúkrahús | Legudeild | 52,0 | 41,0 | 42,0 |
Hjúkrunar-/dvalarheimili | Roðasalir | 68,0 | 69,0 | 70,0 | ||
Aðrar stofnanir | Heilsustofnun NLFÍ | 67,7 | 68,3 | 62,5 | ||
Aðrar stofnanir | Reykjalundur | 55,0 | 56,0 | 56,8 | ||
Hjúkrunar-/dvalarheimili | Sólvellir | 45,0 | 45,0 | 45,0 | ||
Hjúkrunar-/dvalarheimili | Hjallatún | 67,0 | 68,0 | 69,0 | ||
Sjúkrahúsið Vogur | Vogur | 47,9 | 48,0 | 46,9 | ||
Hjúkrunar-/dvalarheimili | Fellsendi | 60,0 | 61,0 | 62,0 |
3. Hversu marga skjólstæðinga hefur hver heimilislæknir að meðaltali á hverri heilsugæslustöð? Hver er ákjósanlegur fjöldi skjólstæðinga hvers heimilislæknis að mati ráðherra?
Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir ofangreindum upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands. Niðurstaðan varð sú að SÍ gátu ekki tekið upplýsingarnar úr sínum gögnum. Til að geta svarað spurningunni þarf að skoða gögnin í samhengi við starfshlutfall hvers læknis, þar sem ekki eru allir heimilislæknar í 100% starfi og læknar sinna gjarnan öðrum störfum meðfram heilsugæslulækningum, þetta á sérstaklega við um lækna á landsbyggðinni. Það þarf því að skoða þetta í samhengi við það starfshlutfall sem læknir vinnur við móttöku skjólstæðinga á heilsugæslu í dagvinnu. Ráðuneytið metur það sem svo að til þess að hægt sé að svara þessum lið fyrirspurnarinnar þurfi að fara í greiningarvinnu og ítarlega staðlaða upplýsingasöfnun frá heilbrigðisstofnunum sem sé umfram það sem lagt er til grundvallar í 57. gr. þingskapalaga, nr. 55/1991.
Hvað varðar spurninguna um hver sé ákjósanlegur fjöldi skjólstæðinga hvers heimilislæknis að mati ráðherra má benda á að ráðherra hefur nú sett af stað umfangsmikið verkefni um framtíð læknisþjónustu sem verður unnið í nánu samstarfi við haghafa. Auk þess er þegar hafin umfangsmikil vinna í ráðuneytinu við mönnunargreiningu þvert á heilbrigðiskerfið, sem miðar að því að móta framtíðarsýn ráðuneytisins um gögn og greiningar, ná yfirsýn yfir mönnun heilbrigðisstétta og undirbyggja mönnunaráætlun til framtíðar. Niðurstaða þeirrar greiningar kemur í framtíðinni að góðum notum við að svara fyrirspurn sem þessari.
Þá vísar ráðherra til svars við fyrirspurn um lækna á þskj. 2024 í 681. máli, en þar svaraði ráðherra spurningunni um hvert væri lágmarksviðmið um mönnun lækna á heilbrigðisstofnunum. Þar kemur fram að Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) hefur, að ósk fagráðs ÞÍH, lagt mat á mönnunarþörf heilsugæslunnar (fyrsta stigs þjónustu) en hefur ekki lagt mat á lágmarksviðmið mönnunarþarfa lækna á heilbrigðisstofnunum úti á landi þar sem boðið er upp á annars stigs þjónusta líka. Það var metið sem svo að sennilega þyrfti einn heimilislækni á 1.000 til 1.500 íbúa. ÞÍH taldi seinni töluna þó sennilega of háa og að hún ætti að vera nær 1.200 íbúum og benti á að forsendur þessa mats væru afar misjafnar eftir verkefnum, svæðum o.s.frv.
Ráðherra hefur ekki sett lágmarksviðmið um mönnun lækna á heilbrigðisstofnunum og bendir á að í kröfulýsingu um heilsugæslustöðvar stendur að mönnun sé á ábyrgð rekstraraðila og almennt er mönnun hverrar stofnunnar á ábyrgð hennar. Skipulag hverrar stofnunar tekur síðan mið af umfangi starfseminnar sem getur verið misjöfn milli staða, þannig getur verið munur á skipulagi mönnunar heilbrigðisstarfsfólks eftir einingum, stofnunum og landsvæðum. Við skipulag mönnunar horfa stofnanir einnig til fjárveitinga/fjárheimilda og aðgengi að starfsfólki.