Ferill 31. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 31  —  31. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um áhrif sakaferils vistfjölskyldumeðlims á umsókn um dvalarleyfi vegna vistráðningar.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


    Hvaða þýðingu hafa upplýsingar um sakaferil vistfjölskyldumeðlims skv. 3. mgr. 68. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, fyrir umsókn um dvalarleyfi vegna vistráðningar samkvæmt lögunum? Getur sakaferill vistfjölskyldumeðlims haft áhrif á ákvörðun Útlendingastofnunar um veitingu dvalarleyfis á grundvelli ákvæðisins? Ef svo er, með hvaða hætti og á hvaða lagagrundvelli?


Skriflegt svar óskast.