Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 170 — 170. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021 (vatnsorkuver, vindorkuver).
Flm.: Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.
1. gr.
a. Liður 3.15 orðast svo:
A | B | ||
3.15 | Vatnsorkuver, utan þess sem fellur undir tölul. 3.02, með uppsett rafafl 200 kW eða meira. | X |
A | B | ||
3.16 | Vindorkuver, utan þess sem fellur undir tölul. 3.02, með uppsett rafafl 1 MW eða meira eða mannvirki sem eru 25 m eða hærri. | X |
2. gr.
Greinargerð.
Í gildandi lögum falla vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira og stöðvar sem nýta vindafl til raforkuframleiðslu með uppsett rafafl 1 MW eða meira í flokk B í 1. viðauka. Skv. 1. mgr. 1. viðauka skal meta framkvæmdir sem falla undir B-flokk í hverju tilfelli fyrir sig og af því leiðir að ekki er skylt að framkvæma mat á umhverfisáhrifum við slíkar framkvæmdir.
Framkvæmdir við gerð og rekstur fallvatnsvirkjana og vindbúa kunna að hafa í för með sér veigamikil áhrif á lífríki og náttúru. Óánægja ríkir með núverandi fyrirkomulag þar sem virkjanir undir 10 MW rafafli hafa hlotið framkvæmdaleyfi án þess að umhverfismat hafi farið fram. Þá geta vindmyllur með 1 MW valdið ýmsum umhverfisröskunum. Því er lagt til að öll vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira og stöðvar sem nýta vindafl til raforkuframleiðslu með uppsett rafafl 1 MW eða meira falli undir flokk A í 1. viðauka og framkvæmdaleyfi verði samkvæmt því ávallt háð mati á umhverfisáhrifum.