Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 189 — 187. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (strandveiðar).
Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Halldóra Mogensen, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
1. gr.
2. gr.
Heimilt er að stunda handfæraveiðar við Ísland samkvæmt skilyrðum þessarar greinar. Í lögum þessum eru slíkar veiðar nefndar strandveiðar. Afli sem fæst við strandveiðar reiknast ekki til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra skipa er þær veiðar stunda.
Einungis er heimilt að hefja strandveiðar að undangenginni skráningu fiskiskips hjá Fiskistofu. Fiskistofu er aðeins heimilt að skrá fiskiskip til strandveiða sem fullnægja ákvæðum 5. gr. og einungis er heimilt að skrá á hverja útgerð, eiganda, einstakling eða lögaðila, eitt fiskiskip til strandveiða. Eigandi fiskiskips skal vera lögskráður á skipið. Eftir skráningu til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark þess árs umfram það sem flutt hefur verið til skipsins.
Skráning til strandveiða samkvæmt þessari grein er bundin eftirfarandi skilyrðum:
1. Tilkynna skal Fiskistofu um sjósókn fiskiskipsins í samræmi við reglur sem ráðherra setur með reglugerð.
2. Aldrei er heimilt að hafa fleiri en fjórar handfærarúllur um borð í fiskiskipi. Engin önnur veiðarfæri en handfærarúllur skulu vera um borð.
3. Skylt er að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar og skal hann veginn og skráður endanlega hér á landi. Um vigtun, skráningu og meðferð afla fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, og ákvæðum gildandi reglugerðar þar um.
Beita skal ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.
3. gr.
Fiskistofa skal veita áminningar og svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni eða leyfi til öflunar sjávargróðurs, eða eftir atvikum áminna eða banna veiðar skipa sem skráð eru til strandveiða, fyrir brot á lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum um umgengni um nytjastofna sjávar. Ef veiðitímabili er lokið áður en ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis tekur gildi, eða veiðitímabili lýkur áður en gildistíma sviptingar lýkur, skal leyfissvipting samkvæmt ákvörðuninni gilda við útgáfu næsta veiðileyfis, eða eftir atvikum á næsta fiskveiðiári. Ákvörðunum Fiskistofu um áminningar og veiðileyfissviptingar verður skotið til ráðuneytisins, enda sé það gert innan eins mánaðar frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun. Kæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar.
4. gr.
Greinargerð.
Strandveiðar eru umhverfisvænar og fara vel með hafsbotninn. Þær veita einstaklingum um allt land atvinnutækifæri og styrkja byggðir landsins. Núverandi fyrirkomulag er þó óþarflega íþyngjandi og mismunar landsvæðum. Þetta hamlar vexti greinarinnar og kemur í veg fyrir að strandveiðar dafni sem skyldi. Það er miður því að strandveiðar hafa sannað gildi sitt fyrir atvinnulíf í byggðum landsins sem sjálfbærar, vistvænar veiðar sem glætt hafa byggðir landsins lífi og stuðlað að jákvæðri samfélagsþróun.
Frá upphafi hefur sérstaklega gætt óánægju með áhrif af svæðaskiptingu strandveiða og því að jafnræðisreglan sé ekki nægilega vel í heiðri höfð við framkvæmd veiðanna. Núverandi útfærsla strandveiðikerfisins og notkun svæða og aflamarks skapar þrýsting á strandveiðimenn til að veiða í öllum veðrum og varað hefur verið við hættunni sem af því hlýst.
Fyrirkomulagi strandveiða hefur verið breytt í gegnum árin í því skyni að koma til móts við þessar óánægjuraddir en að mati flutningsmanna hefur markmiðum um öruggar veiðar og jafnræði ekki enn verið náð.
Með frjálsum strandveiðum er íþyngjandi regluverki aflétt af greininni, jafnræði allra er tryggt, þrýstingi til þess að fara til veiða í vályndum veðrum aflétt og lagður grundvöllur að blómlegum smáútgerðum til frambúðar.
Í 6. gr. a gildandi laga eru lagðar miklar takmarkanir á fiskiskip og útgerðir þegar kemur að veiðum. Í fyrsta lagi þarf leyfi frá Fiskistofu til að stunda strandveiðar og aðeins innan þess aflamagns sem ráðherra ákveður. Miðunum er svo skipt upp í fjögur landsvæði sem deila með sér aflamagninu og getur Fiskistofa stöðvað veiðar þegar því aflamarki er náð. Skipin, og löndun úr þeim, eru þar að auki bundin við eitt landsvæði á hverju fiskveiðiári og er skráning skipa bundin við það landsvæði þar sem heimilisfesti útgerðar er.
Strandveiðar eru samkvæmt gildandi lögum bannaðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Hver veiðiferð má ekki standa lengur en í 14 klukkustundir, tilkynna þarf um sjósókn og aðeins má hafa fjórar handfærarúllur um borð. Jafnframt er hver veiðiferð skips bundin við 650 kg af kvótabundnum tegundum, eða 750 kg ef skipið er skráð sem rafknúið skip.
Ákvæðum frumvarps þessa er ætlað að einfalda þessar reglur verulega, án þess að slíkt hafi áhrif á öryggi sjómanna eða neikvæð áhrif á nytjastofna. Í fyrsta lagi eru strandveiðar gefnar frjálsar að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Regluverkið er einfaldað og fallið frá skiptingu landsvæða. Takmörkun við fjórar handfærarúllur á hvert skip takmarkar stærð skipa og aflamagn á hverju fiskveiðiári.
Fallið er frá takmörkunum á aflamagni sem og hvenær árs veiðar mega fara fram. Í ljósi þess að heildarafli strandveiða hefur frá árinu 2009 að jafnaði verið 2–4% af heildarafla alls íslenska flotans innan hvers fiskveiðiárs er ekki talið að frjálsar strandveiðar hafi teljandi áhrif á stofnstærð fisktegunda við strendur Íslands.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Takmarkanir á strandveiðum verða mun minni en í gildandi lögum. Tilkynningarskylda til Fiskistofu helst óbreytt og aðeins verða fjórar handfærarúllur leyfðar um borð í hverju skipi. Ákvæði um hámarksafla í hverri veiðiferð og lengd veiðiferða eru felld úr gildi, sem og ákvæði þess efnis að strandveiðar séu aðeins heimilar frá 1. maí til 31. ágúst. Helst það ákvæði í hendur við að takmarka ekki heildarafla yfir árið. Sjómenn munu, ef frumvarpið verður samþykkt, ekki þurfa að keppast við að ná í sinn hlut í öllum veðrum. Er talið að aflétting þessara takmarkana dragi úr hvatanum til að sigla út í tvísýnum veðrum og auki þannig öryggi sjómanna.
Um 3. gr.