Ferill 312. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 316 — 312. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um fjórða orkupakkann.
Frá Lenyu Rún Taha Karim.
1. Hvar er fjórði orkupakkinn staddur í innleiðingarferli á vegum sameiginlegu EES-nefndarinnar?
2. Hyggst ráðherra leggja til að fjórði orkupakkinn verði leiddur í lög á yfirstandandi kjörtímabili? Ef svo er, hefur ráðuneytið hafið undirbúningsvinnu vegna þess?
3. Ef ekki er í ráði að innleiða fjórða orkupakkann í heild sinni, hefur ráðherra áform um að innleiða einstakar gerðir sem tilheyra fjórða orkupakkanum?
Skriflegt svar óskast.