Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 321 — 317. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fjármagnstekjur umfram atvinnutekjur.
Frá Óla Birni Kárasyni.
1. Hversu margir einstaklingar höfðu fjármagnstekjur umfram launatekjur og reiknað endurgjald á árunum 2013–2022, flokkað eftir eftirfarandi fjárhæðum samanlagðra launatekna og reiknaðs endurgjalds:
a. engar launatekjur eða reiknað endurgjald,
b. 1–99.999 kr. á mánuði,
c. 100.000–499.999 kr. á mánuði,
d. 500.000–999.999 kr. á mánuði,
e. 1.000.000–2.499.999 kr. á mánuði,
f. 2.500.000 kr. eða meira á mánuði?
2. Hverjar voru upphæðir fjármagnstekna, greidds fjármagnstekjuskatts, launatekna eða reiknaðs endurgjalds og greidds tekjuskatts í sömu flokkum á árunum 2013–2022?
Skriflegt svar óskast.