Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 330  —  325. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um fjölþrepa markaðssetningu.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hefur ráðuneytið kannað umfang og dreifingu fjölþrepa markaðssetningar (e. multi-level marketing) hérlendis?
     2.      Stendur til að upplýsa neytendur og söluaðila um eðli slíkrar markaðssetningar? Ef ekki, hvers vegna ekki?
     3.      Fer fram vinna innan ráðuneytisins sem tryggir að slík starfsemi sé í samræmi við íslenska löggjöf? Ef ekki, hvers vegna ekki?


Skriflegt svar óskast.