Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 343  —  336. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um inntökupróf í læknisfræði.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hvaða viðmið eru höfð til hliðsjónar þegar uppbygging og efni inntökuprófs í læknisfræði við Háskóla Íslands er ákvarðað?
     2.      Stendur til að fjölga nemendum sem teknir eru inn í nám í læknisfræði að loknu inntökuprófi? Ef ekki, hvers vegna ekki?


Skriflegt svar óskast.