Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 372 — 361. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um þróunarsamvinnu og réttindabaráttu hinsegin fólks.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Er lögð sérstök áhersla á réttindabaráttu hinsegin fólks í þróunarsamvinnu Íslands? Ef svo er, þá með hvaða hætti?
2. Fylgist Ísland sérstaklega með stöðu mála hvað varðar réttindi hinsegin fólks í samstarfsríkjum og áhersluríkjum í þróunarsamvinnu?
3. Hyggst ráðherra leggja aukna áherslu á réttindabaráttu hinsegin fólks í þróunarsamvinnu Íslands? Ef svo er, þá með hvaða hætti?
Munnlegt svar óskast.