Ferill 202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 420  —  202. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um eldislaxa sem sleppa.


    Við vinnslu þessarar fyrirspurnar var upplýsinga aflað frá Hafrannsóknastofnun sem tók saman umbeðin töluleg gögn. Við vinnslu fyrirspurnarinnar var miðað við stöðuna eins og hún var í dagslok 17. október 2023 en söfnun og greining upplýsinga úr strokinu úr kví Arctic Fish í Patreksfirði stendur enn yfir.

     1.      Hversu margir eldislaxar eru taldir hafa sloppið úr sjókvíum allt frá árinu 2010, sundurliðað eftir árum og landshlutum?
    Fjöldi fiska sem sluppu úr sjókvíum fyrir árið 2017 liggur ekki fyrir, en fyrir þann tíma var umfang sjókvíaeldis lítið. Frá árinu 2017 er áætlað að alls 113.500 laxar hafi sloppið úr sjókvíum og voru eldiskvíarnar allar á Vestfjörðum (tafla 1). Frá 2017 hefur framleiðsla í laxeldi í sjókvíum verið 209.560 tonn. Að þeim forsendum gefnum má áætla að 0,54 laxar hafi sloppið á hvert framleitt tonn.

Tafla 1. Mat á fjölda laxa sem sloppið hafa úr sjókvíum á Vestfjörðum frá árinu 2017 og framleiðsla á þeim tíma.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Hversu mörg atvik eru skráð þar sem talið er að eldislaxar hafi sloppið úr sjókvíum allt frá árinu 2010, sundurliðað eftir árum og landshlutum?
    Frá árinu 2010 eru 16 atvik skráð þar sem tilkynnt var um að gat hafi fundist á sjókvíum eða önnur óhöpp þar sem grunur lék á um á að fiskar hafi sloppið. Af þeim eru 14 á Vestfjörðum og tvö á Austfjörðum (tafla 2). Taka ber fram að í töflunni eru auk lax þrjú tilvik þar sem um regnbogasilung var að ræða. Ekki er fullvíst að fiskar hafi sloppið í öllum tilfellum.

Tafla 2. Skráð atvik þar sem göt hafa fundist á sjókvíum eða önnur atvik þar sem fiskar gætu hafa sloppið.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


3. Hversu margir eldislaxar hafa fundist í laxveiðiám allt frá árinu 2010, sundurliðað eftir
árum og laxveiðiám?

    Hér er gert ráð fyrir að spurt sé um fullorðna laxa sem skila sér í ár og svörin miðast við það.
    Í nóvember 2013 var tilkynnt um að sloppið hefðu 200 laxar úr eldiskví í Patreksfirði. Sumarið 2014 varð vart við meinta eldislaxa í Patreksfirði og veiddust 105 laxar í netaveiðum á laxi sem Fiskistofa stýrði. Auk þeirra fengust upplýsingar frá veiðimönnum um 104 laxa veidda á stöng. Því var staðfest að 209 laxar hefðu veiðst í og við Ósá í botni Patreksfjarðar en þar eru afar takmörkuð skilyrði til uppvaxtar laxaseiða. Alls voru greind 45 hreistursýni af þessum löxum og voru 43 þeirra af laxi af eldisuppruna
    Til Hafrannsóknastofnunar bárust sýni af 10 löxum af eldisuppruna til greiningar árið 2018, 6 árið 2019, 3 árin 2020 og 2021 og 28 árið 2022.
    Alls hefur verið staðfest að eldislaxar hafi veiðst í 25 ám 2023. Auk þeirra eru nú sýni af 79 löxum til viðbótar í greiningu. Alls hafa því Hafrannsóknastofnun borist sýni af 166 löxum (miðað við 27. sept. 2023), með einkenni eldisuppruna. Hafrannsóknastofnun eru enn að berast sýni frá meintum eldislöxum frá veiðimönnum, veiðiréttareigendum og vegna veiðiátaks Fiskistofu. Þannig hafa Hafrannsóknastofnun á veiðisumrinu 2023 borist meintir eldislaxar úr 29 veiðiám (veiðisvæðum), allt frá Kálfá að Fnjóská. Ekki er víst að allir eldislaxar sem veiðast berist Hafrannsóknastofnun til greiningar.


Tafla 3. Fjöldi greindra eldislaxa sem veiðst hafa skipt eftir árum og veiðiám eða veiðistað.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Tafla 4. Ár og vatnakerfi þar sem meintir eldislaxar hafa veiðst og borist Hafrannsóknastofnun til greiningar á uppruna 17. október 2023. Fram kemur fjöldi laxa í greiningu, fjöldi staðfestra eldislaxa og fjöldi laxa þar sem greiningu er ólokið.
Staðsetning (nr. á mynd) Samtals í greiningu Staðfestir eldislaxar Greiningu ólokið
Vesturland               
1. Hvítá 1 1
2. Álftá 1 1
3. Hítará 1 1
4. Haffjarðará 2 2
5. Holtsá 1 1
6. Haukadalsá 1 1
7. Svínafossá 1 1
8. Laxá í Dölum 9 4 5
9. Krossá 1 1
10. Búðardalsá 8 2 6
11. Staðarhólsá/Hvolsá 10 10
Vestfirðir (að Ströndum)     
12. Þorskafjarðará 1 1
13. Móra 3 3
14. Vatnsdalsá 3 1 2
15. Örlygshöfn 4 4
16. Suðurfossá 5 5
17. Patreksfjörður/Ósá 6 6
18. Sunndalsá 20 7 13
19. Dynjandisá 1 1
20. Mjólká 2 2
21. Laugardalsá 2 2
22. Ísafjarðará 21 15 6
23. Langadalsá 9 6 3
24. Hvannadalsá 3 1 2
25. Selá 2 2
Strandir og Norðurland     
26. Kjósará 1 1
27. Staðará 6 6
28. Víðidalsá 2 2
29. Hrútafjarðará 38 7 31
30. Síká 6 6
31. Miðfjarðará 26 16 10
32. Tjarnará 3 1 2
33. Hóp 1 1
34. Víðidalsá 3 1 2
35. Vatnsdalsá 18 12 6
36. Blanda 55 44 11
37. Héraðsvötn 2 2
38. Húseyjarkvísl 4 3 1
39. Laxá á Refasveit 15 5 10
40. Hjaltadalsá/Kolka 2 1 1
41. Eyjafjarðará 1 1
42. Fnjóská 2 2
Suðurland          
43. Geirlandsá 1 1
44. Kálfá 2 1 1
Samtals öll svæði 306 164 142



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Mynd. Staðsetning áa þar sem meintir eldislaxar hafa veiðst og staða greiningar á uppruna þeirra.