Ferill 430. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 451 — 430. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um vinnslu jarðefna af hafsbotni.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
Telur ráðherra að umhverfisáhrif af mögulegri vinnslu Norðmanna á jarðefnum af hafsbotni geti teygt sig yfir mörk efnahagslögsögu Íslands og Noregs og þar með komið illa við lífríki á Íslandsmiðum? Sé svo, hefur athugasemdum þess efnis verið komið á framfæri við norsk stjórnvöld?
Munnlegt svar óskast.