Ferill 465. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.
Þingskjal 506 — 465. mál.
Málsnúmer.
Fyrirspurn
til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um ljósleiðarasamband.
Frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur.
1. Hversu mörg heimili höfðu ekki ljósleiðarasamband á tímabilinu 1. janúar 2021 til 1. nóvember 2023? Svar óskast sundurliðað eftir árum og póstnúmerum.
2. Hversu mörg heimili fengu ljósleiðarasamband á tímabilinu 1. janúar 2021 til 1. nóvember 2023? Svar óskast sundurliðað eftir árum og póstnúmerum.
Skriflegt svar óskast.