Ferill 492. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 545  —  492. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um endurskoðun á bakvaktafyrirkomulagi ljósmæðra.

Frá Kristrúnu Frostadóttur.


     1.      Hver er staðan á viðræðum við Ljósmæðrafélag Íslands um endurskoðun á bakvöktum og bakvaktafyrirkomulagi sem frestað var þegar samkomulag var gert um framlengingu á kjarasamningi Ljósmæðrafélags Íslands og íslenska ríkisins 14. apríl sl. en samkvæmt bókun með samkomulaginu átti vinna við endurskoðun að hefjast 17. apríl sl. og ljúka 31. janúar 2024?
     2.      Hver er staðan á viðræðum við Ljósmæðrafélag Íslands um endurskoðun annarra sérmála sem sett voru í verkáætlun í samkomulagi sem gert var um framlengingu á kjarasamningi Ljósmæðrafélags Íslands og íslenska ríkisins 14. apríl sl.?


Skriflegt svar óskast.