Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 548 — 495. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um myndefni gervigreindar.
Frá Halldóri Auðar Svanssyni.
1. Hvernig hyggst ráðherra tryggja heilindi kosninga og persónu einstaklinga í ljósi hættunnar sem fylgir því þegar einstaklingar verða fyrir því að gervigreind útbýr myndefni sem sýnir persónu þeirra í aðstæðum eða aðgerðum sem ekki eiga sér stoð í veruleikanum?
2. Hyggst ráðherra leggja fram tillögur að lagabreytingum til að gæta að þessu?
Skriflegt svar óskast.