Ferill 499. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 553  —  499. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um ráðstafanir til að lækka eldsneytiskostnað í millilandaflugi.


Flm.: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bergþór Ólason.


    Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra að undirbúa lagafrumvarp þar sem kveðið verði á um ráðstafanir sem leiði til þess að eldsneytisverð í millilandaflugi lækki.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi er nú flutt í sjötta skipti. Hún var síðast lögð fram á 153. löggjafarþingi (847. mál) af Önnu Kolbrúnu Árnadóttur en náði ekki fram að ganga og er nú lögð fram óbreytt.
    Samkvæmt lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, skal jafna flutningskostnað á olíuvörum eins og nánar er þar kveðið á um. Markmið laganna er að tryggja að eldsneytisverð sé hið sama um allt land til að jafna búsetuskilyrði og samkeppnisstöðu fyrirtækja.
    Jöfnun á flutningskostnaði á hins vegar ekki við um eldsneyti sem er ætlað til útflutnings og fellur þar undir eldsneyti til millilandaflugs og því er eldsneyti dýrara á millilandaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum heldur en í Keflavík og Reykjavík.
    Með tillögu þessari er lagt til að innviðaráðherra undirbúi í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra lagafrumvarp í þá veru að breyting verði á til að verð á eldsneyti í millilandaflugi lækki. Slík breyting mundi styrkja stöðu ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og ýta undir dreifingu ferðamanna um landið enda gegna Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur hlutverki sem varaflugvellir líkt og Reykjavíkurflugvöllur gerir og eðlilegt að sama verð sé á eldsneyti á þessum þremur flugvöllum.