Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.
Þingskjal 608 — 524. mál.
Leiðréttur texti.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna fitubjúgs.
Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.
1. Hvaða skilyrði þarf sjúklingur að uppfylla til þess að fá niðurgreiðslu á stoð- og hjálpartækjum vegna sjúkdómsins fitubjúgs ( lipoedema)?
2. Hver hefur kostnaðarþátttaka Sjúkratrygginga Íslands verið vegna stoð- og hjálpartækja til einstaklinga með fitubjúg árlega síðastliðin fimm ár og hversu margar umsóknir hafa borist hvert ár?
3. Hafa Sjúkratryggingar Íslands hafnað því að taka þátt í kostnaði vegna stoð- og hjálpartækja fyrir einstaklinga með fitubjúg á síðastliðnum fimm árum og hversu margar umsóknir hafa borist hvert ár?
4. Hvaða kröfur eru gerðar til greiningar sjúklings og/eða meðferðar til að Sjúkratryggingar Íslands taki þátt í kostnaði við aðgerðir vegna fitubjúgs?
5. Er unnið að undirbúningi þess að hægt verði að framkvæma aðgerðir vegna fitubjúgs hér á landi?
Skriflegt svar óskast.