Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 742 — 573. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um farsímanotkun barna á grunnskólaaldri.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Telur ráðherra farsímanotkun íslenskra barna á grunnskólaaldri hafa áhrif á námsárangur þeirra? Ef svo er, hyggst ráðherra beita sér fyrir banni eða hömlum á slíkri notkun?
2. Hvernig miðar vinnu við gerð reglna um viðeigandi og örugga farsímanotkun í grunnskólum?
Skriflegt svar óskast.