Ferill 759. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1153  —  759. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um sjálfkrafa skráningu samkynja foreldra.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hefur verið skoðað í ráðuneytinu að heimila sjálfkrafa skráningu samkynja foreldra sem eru í hjúskap eða í skráðri sambúð?
     2.      Hver er afstaða ráðherra til þess að heimila sjálfkrafa skráningu samkynja foreldra sem eru í hjúskap eða í skráðri sambúð?
     3.      Telur ráðherra að eitthvað standi í vegi fyrir því að heimila sjálfkrafa skráningu samkynja foreldra sem eru í hjúskap eða í skráðri sambúð?


Skriflegt svar óskast.