Ferill 842. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1263  —  842. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um ADHD-lyf og svefnlyf.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


     1.      Hversu margir Íslendingar eru á ADHD-lyfjum samkvæmt lyfjaskrá? Svar óskast sundurliðað eftir aldri og kyni.
     2.      Hversu margir Íslendingar fá uppáskrifuð svefnlyf? Svar óskast sundurliðað eftir aldri og kyni.
     3.      Telur ráðherra áhyggjuefni að fleiri Íslendingar séu á ADHD-lyfjum en tíðkast hjá öðrum þjóðum? Er einhver vinna í gangi í ráðuneytinu við að skoða ástæður þess?


Skriflegt svar óskast.