Ferill 843. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1264 — 843. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um gjaldskrá vegna tannréttinga barna með skarð í vör eða tanngarði.
Frá Hákoni Hermannssyni.
1. Stendur til að breyta gjaldskrá Sjúkratrygginga þannig að hún nái yfir tannréttingameðferðir fyrir börn með skarð í vör eða tanngarði? Ef svo er, með hvaða hætti og hvenær?
2. Hafa Sjúkratryggingar hafnað niðurgreiðslu aðgerða eða meðferða barna með skarð í vör eða tanngarði frá 1. janúar 2022?
3. Helst réttur til niðurgreiðslu tannréttinga, aðgerða og meðferða vegna fyrrgreinds fæðingargalla eftir að 18 ára aldri er náð?
Skriflegt svar óskast.