Ferill 844. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1265 — 844. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um skaðaminnkandi aðgerðir vegna ópíóíðavanda.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
1. Hefur ráðherra kynnt sér „safer supply“-þjónustu sem hefur verið innleidd í Kanada?
2. Telur ráðherra að slík þjónusta gæti orðið hluti af skaðaminnkandi aðgerðum vegna ópíóíðavanda hér á landi?
3. Hyggst ráðherra leggja til og fjármagna nýjar meðferðir og aðgerðir til að eiga við ópíóíðavanda hér á landi? Ef svo er, hverjar? Ef svo er ekki, hvers vegna?
Skriflegt svar óskast.