Ferill 863. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1289  —  863. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um fasteignagjöld ríkisins.

Frá Óla Birni Kárasyni.


     1.      Hver voru heildarfasteignagjöld ríkisins, þ.e. ríkisfyrirtækja og stofnana ríkisins, árið 2023?
     2.      Hvernig skiptust fasteignagjöld eftir sveitarfélögum og hvað greiddi hvert ríkisfyrirtæki og hver ríkisstofnun til hvers sveitarfélags?
     3.      Hvaða starfsemi ríkisins er undanþegin greiðslu fasteignagjalda?
     4.      Hvernig hafa fasteignagjöld ríkisins þróast frá árinu 2000? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og árum á verðlagi hvers árs og á föstu verðlagi ársins 2023.


Skriflegt svar óskast.



Greinargerð.

    Fyrirspurnin er byggð á fyrirspurn sama efnis sem lögð var fram á 150. löggjafarþingi (þskj. 243).